Pönnukökur

Í gegnum tíðina hef ég prófað margar pönnukökuuppskriftir en þessi hefur reynst langbest.  Hún byggir á uppskrift úr bókinni Maturinn okkar eftir Nönnu Rögnvaldardóttur. Eina breytingin sem ég hef gert er að skipta út hluta af mjólkinni fyrir kaffi.  Mér finnst bragðið verða betra og liturinn fallegri.  Þannig að ef þið viljið ekki hafa kaffi… Halda áfram að lesa: Pönnukökur

Frækex

Hér kemur uppskrift að kexi eða hrökkbrauði sem hentar þeim sem vilja sneiða hjá kornvörum og sykri. Eftir að hafa prófað nokkrar útgáfur af svona bakstri er ég loksins búin að finna aðferð sem skilar mér bragðgóðu kexi sem helst í sæmilega formuðum kökum. Ekki spillir fyrir að kexið er meinhollt og stútfullt af raunverulegum… Halda áfram að lesa: Frækex

Saltkringlubitar

Nýlega kom Þóra kollegi minn norður í framboðsferð og hélt fundi með iðjuþjálfum hér á svæðinu. Hún hafði keypt meðlæti í Costco til að bjóða upp á með kaffinu á vinnustaðafundum. Þegar hún setti á borðið skál með saltkringlubitum, sem mig minnir að heiti Snappers, varaði hún viðstadda við afleiðingunum því þetta væri verulega ávanabindandi… Halda áfram að lesa: Saltkringlubitar

Kjúklingur með tómötum og þistilhjörtum

Undanfarið hefur þessi kjúklingaréttur verið næstum pínlega oft í matinn hjá okkur. Ástæðan er auðvitað einfaldlega sú að okkur þykir hann verulega bragðgóður og svo spillir ekki fyrir að hann er auðlagaður. Eins og margir ofnréttir er hann líka þægilegur þegar von er á gestum. Rétturinn er í ofninum meðan tekið er á móti gestunum… Halda áfram að lesa: Kjúklingur með tómötum og þistilhjörtum

Hnetubitar

Sætindi þurfa ekki að vera troðfull af hvítum sykri. Hér er uppskrift að ljúffengum nammibitum sem eru ótrúlega fljótgerðir. Reyndar þarf að sýna smá biðlund því súkkulaðibráðin sem sett er ofan á bitana þarf að ná að kólna áður en hægt er að gæða sér á þeim. En biðin er alveg þess virði. Bitana er… Halda áfram að lesa: Hnetubitar

Færeysk ávaxtakaka

Hér deili ég með ykkur fjölskyldugersemi, hvorki meira né minna. Uppskriftina fékk ég frá mömmu sem fékk hana frá mömmu sinni. Hvaðan amma Svafa fékk hana veit ég ekki.  Hvers vegna kakan er kennd við Færeyjar er líka ráðgáta en Anna Marit fyrrum samstarfskona mín sem er bæði eðalkona og hálfur Færeyingur segist telja að… Halda áfram að lesa: Færeysk ávaxtakaka

Sænskar kjötbollur

Köttbullar heita þær á sænsku og eiga lítið skylt við íslenskar kjötfarsbollur. Jú kannski eitthvað skyldar en þær sænsku eru töluvert vandaðri matur, svo það sé nú sagt eins og það er. Minn heittelskaði kann verulega vel að meta kjötbollur, sérstaklega í þessari útgáfu með kartöflumús, sósu og sultu. Hér er uppskriftin: 500 g blandað… Halda áfram að lesa: Sænskar kjötbollur

Klörubrauð

Uppskrift að Klörubrauði er búin að vera þó nokkur ár í uppskriftamöppunni minni og hefur verið notuð töluvert. Ég gat ekki með nokkru móti munað hvaðan hún er fengin eða hver þessi Klara er. Hvað gerir kona þá? Nú, hún gúgglar það að sjálfsögðu! Google segir mér að uppskriftin sé úr bók eftir Yesmine Olsson… Halda áfram að lesa: Klörubrauð